2022-09-30 12:09:39 CEST

2022-09-30 12:09:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Innherjaupplýsingar

REITIR: Gengið hefur verið frá kaupum á Lambhagavegi 7


Með vísan til fyrri tilkynningar um kaup Reita á fasteigninni að Lambhagavegi 7 sem sjá má hér, tilkynnist hér með að öllum fyrirvörum vegna kaupanna hefur verið aflétt og var kaupsamningur undirritaður í dag. Afhending hins selda miðast við 1. október 2022. Um er að ræða 4.200 fermetra af nýju og vönduðu lagerhúsnæði sem er í útleigu að fullu og eru áætlaðar leigutekjur um 175 m.kr. og áætlaður rekstrarhagnaður á ári um 155 m.kr.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á netfanginu einar@reitir.is.