|
|||
2014-04-30 10:30:00 CEST 2014-04-30 10:30:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 29. apríl 2014. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 2. maí 2014. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 930.000.000 á bilinu 3,21% - 3,35%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 810.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,27%. Útistandandi fyrir voru ISK 14.774.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 15.584.352.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|