|
|||
2008-11-07 13:15:37 CET 2008-11-07 13:16:37 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir- Greinargerð um áhrif breytinga á fjármálamörkuðum á Nýherja hf.Vísað er til bréfs Fjármálaeftirlitsins dags. 23. október 2008, en í bréfinu er farið fram á að allir útgefendur hlutabréfa birti sérstaka greinargerð um bein og óbein áhrif þessa óvenjulega ástands, sem ríkir nú á fjármálamarkaði. Eftirfarandi er svar Nýherja hf. við þessari beiðni. Nýherji birti árshlutareikning fyrir 9 mánuði ársins 2008 þ. 22. október 2008, sem sendur var til Kauphallar Íslands sama dag. Í skýringum með uppgjörinu kom m.a. fram að horfur hérlendis eru nú óljósari en áður og óvissa meiri vegna breytinga á rekstri viðskiptabanka og stöðu á fjármála-mörkuðum. Þótt líklegt sé að samdráttur verði í vörusölu hérlendis eru þjónustutekjur nokkuð stöðugar. Reiknað er með ágætum tekjum erlendra dótturfélaga Nýherja og að afkoma þeirra verði ágæt. Vegna óvissunnar má ætla að afkoma samstæðunnar verði undir áætlun í fjórða ársfjórðungi. Talið er að minnkandi kaupgeta viðskiptavina hérlendis hafi þau áhrif að vörusala á neytendavörum dragist saman. Því verður nú lögð mikil áhersla á að efla starfsemi félagsins erlendis. Brugðist hefur verið við breyttum aðstæðum með hagræðingaraðgerðum. Launaliðum starfsmanna á Íslandi hefur verið sagt upp og munu laun allra starfsmanna, sem eru með meira en kr. 300.000 í mánaðarlaun lækka um 10% frá og með 1. febrúar 2009. Starfsmönnum hefur fækkað í þeim einingum, sem helst verða fyrir áhrifum af minnkandi eftirspurn. Öllum ráðum verður beitt til þess að lækka rekstrarkostnað með ýmsum hagræðingaraðgerðum. Gengismál íslensku krónunnar eru í mikilli óvissu þessa dagana og stýrivextir mjög háir. Gengisfall krónunnar hefur því haft veruleg áhrif á fjármagnskostnað og erlenda skuldastöðu félagsins eins og fram kemur í 9 mánaða uppgjöri félagsins. Erfiðleikar við öflun gjaldeyris til greiðslu á erlendum vöruskuldum og gjörbreyttar aðstæður lánsviðskipta við erlenda birgja hefur valdið félaginu erfiðleikum. Óvissa er um hversu lengi þetta ástand varir. Haft verður samráð við viðskiptabanka félagsins um frestun afborgana lána á næsta ári til að auka svigrúm til að mæta hugsanlegum vanskilum viðskiptamanna og tíma-bundnum samdrætti verkefna. Áður hefur komið fram í fréttum félagsins til kauphallarinnar að Nýherji hf. keypti TM Software hf. fyrr á árinu og einnig hefur verið tilkynnt um skipulagsbreytingar í tengslum við þessi kaup. Samþætting á starfsemi félagsins með þessum kaupum og skipulags-breytingum sem og ofangreindar aðgerðir í launamálum, kostnaðaraðhaldi og viðræðum við viðskiptabanka eru helstu þættir í aðgerðum félagsins til þess að bregðast við þeim óvissuþáttum, sem nú eru ríkjandi. Fjárhagslegir og viðskiptalegir áhættuþættir, sem greint hefur verið frá hér að ofan eru umfram venjulega áhættu í starfsgrein félagsins. Félagið treystir sér ekki til að meta að öðru leyti bein og óbein áhrif þessa óvenjulega ástands á eigin rekstur og getur því ekki eytt allri óvissu um stöðu félagsins til að stuðla að eðlilegri verðmyndun á hlutabréfum þess að nýju eins og óskað er eftir í bréfi Fjármálaeftirlitsins. |
|||
|