2014-09-12 16:41:29 CEST

2014-09-12 16:42:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Ársreikningur

Árshlutareikningur Reykjanesbæjar fyrstu sex mánuði ársins 2014


Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjanesbæjar fyrir tímabilið janúar til
júní hefur verið lagður fram í bæjarráði. 

Hjá samstæðu Reykjanesbæjar, A og B hluta, er rekstrarniðurstaða fyrir
fjármagnsliði jákvæð um 542 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu
um 530 mkr. Rekstrarniðurstaða eftir fjármagnsliði er neikvæð um 1.131 mkr en
áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 958 mkr. Helsta frávik frá
áætlun er sölutap hlutabréfa. 

Eignir samstæðu eru bókfærðar á 48.368 mkr, þar af eru veltufjármunir 4.412
mkr. Skuldir samstæðu með lífeyrisskuldbindingum og leiguskuldbindingum eru
40.630 mkr, þar af eru skammtímaskuldir 3.775 mkr. Eigið fé nam 7.738 mkr. 

Hreint veltufé samstæðu frá rekstri er um 549 mkr. Handbært fé samstæðu frá
rekstri er um 555 mkr. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta er neikvæð um 648 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að
hún yrði neikvæð um 494 mkr og er niðurstaðan því lakari um 154 mkr. Verri
rekstrarniðurstaða frá áætlun er m.a. vegna sölutaps á hlutabréfum. 

Rekstur Reykjanesbæjar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem er fjármögnuð að hluta eða öllu leyti með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð sem inniheldur rekstur fagsviða, Eignasjóð og Þjónustumiðstöð.
Til B-hluta teljast fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu bæjarins,
en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru:Fasteignir Reykjanesbæjar, Fráveita, Framkvæmdasjóður aldraðra, HS Veitur
hf, Reykjaneshöfn, Tjarnargata 12 og Víkingaheimar.