2011-05-27 18:10:36 CEST

2011-05-27 18:11:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - Niðurstöður hluthafafunda

Aðalfundur Farice ehf var haldinn þann 27. maí 2011 á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, Kópavogi


Aðalfundur Farice ehf var haldinn þann 27. maí 2011 á skrifstofu félagsins að
Smáratorgi 3, Kópavogi. 

Helstu niðurstöður aðalfundarins voru þessar:

1.  Kynnt var skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra.

2.  Ársreikningur fyrir árið 2010 var samþykktur.

3.  Samþykkt var að tap félagsins yrði ráðstafað til lækkunar á eigin fé
félagsins. 

4.  Samþykkt var tillaga um að þóknun fyrir stjórnarstörf yrði óbreytt, þ.e.
kr. 75 þús. á mánuði 
     fyrir stjórnarmenn og kr.150  þús. á mánuði fyrir stjórnarformann.

5.  Í stjórn félagsins voru kjörnir:

     Aðalmenn:
     Egill Tryggvason, Karl Alvarsson, Kristján Gunnarsson, Magnús Bjarnason og
Pétur Richter. 

     Varamenn:
     Hafsteinn S. Hafsteinsson, Kristín S. Konráðsdóttir, Þorgerður
Marinósdóttir, Þórður Ólafur 
     Þórðarson og Þórhallur Arason.

6.  Samþykkt var tillaga um að endurskoðunarfélag félagsins yrði KPMG ehf.

7.  Samþykkt var tillaga um að hækka gildandi heimild stjórnar til að auka
hlutafé í A-flokki úr 
     EUR 3 milljónum í EUR 8 milljónir.



Stjórn félagsins kom saman þennan sama dag og skipti með sér verkum þannig:

Formaður stjórnar:            Karl Alvarsson
Varaformaður:                   Kristján Gunnarsson