|
|||
2014-10-23 10:38:24 CEST 2014-10-23 10:39:25 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Töku LBANK CB 17 til viðskipta á Nasdaq Iceland frestaðÍ fréttatilkynningu frá Landsbankanum hf. þann 16. október var tilkynnt um útgáfu LBANK CB 17 sem er flokkur sértryggðra skuldabréfa, óverðtryggð til þriggja ára, að fjárhæð 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,3%. Í tilkynningunni kom einnig fram að stefnt væri að töku LBANK CB 17 til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. október 2014. Það mun ekki ganga eftir en gert er ráð fyrir því að þessi flokkur verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland í síðasta lagi þann 15. desember næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014 Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011 |
|||
|