2009-11-20 16:45:00 CET

2009-12-07 11:03:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 11 0722:
Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.900 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.300 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,92 (7,35%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 25 0612:
Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 22.117 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 12.847 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,65 (8,15%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 25. nóvember 2009.