|
|||
![]() |
|||
2015-03-27 13:52:35 CET 2015-03-27 13:53:36 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 26. mars 2015. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 31. mars 2015. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 600.000.000 á bilinu 2,91% - 3,03%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 300.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 15.000.000 sem Lánasjóðurinn selur af eigin bréfum sjóðsins. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 315.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Útistandandi fyrir voru ISK 17.154.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 17.454.352.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|