|
|||
2010-10-19 17:34:04 CEST 2010-10-19 17:35:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKS 21 0414Föstudaginn 22. október kl. 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi í tvo flokka ríkisbréfa. Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum sex ára flokki ríkisbréfa RIKB 16 1013. Flokkurinn ber 6,00% árlega nafnvexti með gjalddaga 13. október ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 13. október 2016. Nánari lýsingu á flokknum fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á www.lanamal.is. Einnig verða boðin til sölu bréf í verðtryggða flokknum RIKS 21 0414. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 27. október 2010. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26. október 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 27. október 2010 |
|||
|