|
|||
2013-07-11 13:45:00 CEST 2013-07-11 13:45:01 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 1015 OG RIKV 14 0115Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 1015 og RIKV 14 0115 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 13 1015: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.250 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.050 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,126 (flatir vextir 3,45%). RIKV 14 0115: Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.770 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.570 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,243 (flatir vextir 3,50%). |
|||
|