|
|||
![]() |
|||
2015-05-07 11:11:36 CEST 2015-05-07 11:12:36 CEST Sjóvá-Almennar tryggingar hf - FjárhagsdagatalSjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 verður birt 12. maíSjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 eftir lokun markaða þriðjudaginn 12. maí. Sjóvá býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2015 kl. 8.30 miðvikudaginn 13. maí í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri félagsins mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef félagsins www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar. |
|||
|