2024-07-03 19:17:10 CEST

2024-07-03 19:17:10 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Vátryggingafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

SKAGI: Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemd við kaup Skaga á Íslenskum verðbréfum


Vísað er til fyrri tilkynningar varðandi kaup Skaga á hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. Nú hefur Samkeppniseftirlitið tilkynnt um ákvörðun sína varðandi kaupin með eftirfarandi ákvörðunarorðum: „Kaup Skaga hf. á um 98,07% af heildarhlutafé Íslenskra verðbréfa hf. fela í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til þess að aðhafast vegna samrunans.“

Nú hefur því fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna verið aflétt og eftir stendur fyrirvari um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands fyrir því að Skagi fari með yfir 50% eignarhlut í Íslenskum verðbréfum og dótturfélagi þess, ÍV sjóðum.