2012-08-09 13:22:46 CEST

2012-08-09 13:23:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Landsnets fyrir tímabilið janúar - júní 2012


- Hagnaður tímabilsins nam 236 milljónum króna -




Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 236 mkr. fyrir fyrstu 6
mánuði ársins 2012 samanborið við tap að fjárhæð 133 mkr. fyrir sama tímabil
árið 2011. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam
4.178 mkr. samanborið 4.358 mkr. á sama tímabili fyrra árs og lækkar um 180
mkr. á milli ára. Betri afkoma á fyrri helmingi ársins 2012 í samanburði við
fyrri helming fyrra árs stafar að mestu af breytingum í fjármagnsliðum og felst
í hagstæðari breytingum á gengi á fyrstu 6 mánuðum ársins 2012 en var miðað við
sama tímabil árið áður. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 2.647 mkr. á
tímabilinu en voru 3.165 mkr. á sama tímabili ársins 2011. Hrein fjármagnsgjöld
lækka því um 518 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2012 í samanburði við sama
tímabil 2011. 

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 17,6% samanborið við 16,7% í lok ársins 2011.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 12.697 mkr. samanborið við 12.462 í lok árs
2011. Heildareignir félagsins í lok júní námu 72.094 mkr. samanborið við 74.679
mkr. í lok árs 2011. Heildarskuldir námu 59.397 mkr. samanborið við 62.217 mkr.
í lok árs 2011. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 8.122 mkr.
Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 2.115 mkr. 

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 9. ágúst 2012.







Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is