2015-03-13 17:05:55 CET

2015-03-13 17:06:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum sértryggðra
skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB
19 var stækkaður um 460.000.000  kr. á ávöxtunarkröfunni 6,64%, verðtryggði
flokkurinn ISLA CBI 20 um 720.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20% og
verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 24  um 540.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni
3,20%.

Heildarstærð ISLA CB 19 útgáfunnar er nú orðin 1,86 ma. kr. og ISLA CBI 20 er
orðin 2,82 ma. kr. Heildarstærð ISLA CBI 24 getur í mesta lagi orðið 10 ma. kr.
og verður við þessa útgáfu orðin 9,94 ma. kr. Var þetta því síðasta útboð sem
haldið verður í þeim flokki og gert er ráð fyrir því að boðinn verði út nýr
sambærilegur flokkur í hans stað í næsta útboði bankans.  Alls hefur
Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð
33,81 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Heildareftirspurnin í útboðinu var 2,41 ma. kr., en 71% tilboða var tekið.
Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 20. mars
næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa
Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í
    síma 844 3678.


[HUG#1903522]