2015-02-09 10:43:29 CET

2015-02-09 10:44:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 6. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 526.544 eigin hluti fyrir
14,5 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetni  Tími      Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir 
ng                  hlutir          rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
4.2.2015  15:17     26.544        27,70      735.269           19.318.412       
--------------------------------------------------------------------------------
6.2.2015  10:41     75.000        27,60      2.070.000         19.393.412       
--------------------------------------------------------------------------------
6.2.2015  11:54     425.000       27,50     11.687.500         19.818.412       
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             526.544                 14.492.769                          
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 19.818.412 hluti í félaginu sem samsvarar 94,4% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 509,5 milljónum króna. TM á nú samtals 2,61%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is