2009-08-28 16:00:41 CEST

2009-08-28 16:01:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Afkoma á fyrri árshelmingi 2009

•  Tekjur á fyrri árshelmingi 3.684,4 mkr. og aukast um 13,4% milli ára.

•  45,8 mkr. tap á fyrri árshelmingi ársins, en 471,7 mkr. tap á sama tíma í
   fyrra. 

•  EBITDA afkoma var 275 mkr. en 288 mkr. árið áður.

•  Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur 188 mkr. þar af nam gengistap 76 mkr.


Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. sem Sláturfélagið á að öllu leyti. 

Tap samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2009 var 45,8
mkr.  Hátt vaxtastig og gengistap erlendra lána skýrir neikvæða afkomu. Á sama
tímabili árið áður var 471,7 mkr. tap.  Eigið fé Sláturfélagsins er tæpar 957
mkr. í lok júní. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 3.684 mkr. á fyrri
árshelmingi ársins 2009, en 3.248 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um
rúm 13%.  Aðrar tekjur voru 23 mkr en 22 mkr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 2.176 mkr. en 1.760 mkr. árið áður.  Launakostnaður
lækkaði um tæpt 1%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um rúm 8% og afskriftir
hækkuðu um rúm 25%.  Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var
121 mkr., en 165 mkr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 275 mkr.  en var 288 mkr. á sama tíma í fyrra. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 188 mkr., en 632 mkr. á sama tímabili
í fyrra.  Gengistap nam tæpum 76 mkr. samanborið við 497 mkr. gengistap árið
áður.  Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um tæpa 21 mkr. en
neikvæð árið áður um 7 mkr.  Tap af rekstri tímabilsins var 45,8 mkr. en 471,7
mkr. tap var á sama tímabili árið áður. 

Veltufé frá rekstri var 206 mkr. á fyrri árshelmingi ársins 2009, samanborið
við 214 mkr. fyrir sama tímabil árið 2008.  Heildareignir Sláturfélagsins 30.
júní  voru 6.176 mkr. og eiginfjárhlutfall 15%.  Veltufjárhlutfall var 1,7 á
fyrri hluta ársins 2009, en 1,6 árið áður. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2009 var hvorki greiddur arður af
B-deild stofnsjóðs né reiknaðir vextir á A-deild stofnsjóðs. 

Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti í samræmi við
heimildir í reglum félaga á Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands.  Ráðgert er að
birta afkomu ársins 2009 þann 26. febrúar 2010. 


Staða og horfur
Rekstrarumhverfi fyrirtækja er afar erfitt í dag, mikil verðbólga, hátt
vaxtastig og neikvæð gengisþróun samfara auknum samdrætti í einkaneyslu í
kjölfar verulegrar lækkunar á ráðstöfunartekjum heimila. Velta félagsins jókst
þó um rúm 13% sem er jákvætt í erfiðu árferði. Hátt vaxtastig og veiking
krónunnar hafði neikvæð áhrif á afkomu SS á fyrri hluta ársins.  Þróun
fjármagnsliða á seinni hluta ársins mun ráða miklu um afkomu félagsins á árinu. 

Kjötsala á landsvísu hefur dregist saman á undanförnum mánuðum jafnframt því
sem útflutningsskylda á dilkakjöti er fallin niður. Veik staða krónunnar hefur
bætt skilyrði fyrir útflutningi á lambakjöti enda mikilvægt að flytja út
umtalsvert magn þar sem innlend framleiðsla er mun meiri en innanlandsneysla. 

Kjötiðnaður félagsins stendur vel með fjölbreytt vöruval og öfluga vöruþróun. 
Erfitt efnahagsumhverfi hefur kallað á nýjar vörur sem falla betur að breyttu
neyslumunstri.  Kjötiðnaður félagsins er vel í stakk búinn til að takast á við
þær aðstæður sem framundan eru. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar er öflugur enda vörumerki deildarinnar vel
þekkt.  Sala á tilbúnum áburði til bænda í samstarfi við Yara í Noregi gengur
vel enda vörugæðin mikil.  Innflutningur á kjarnfóðri er að aukast umtalsvert
milli ára en SS er í samstarfi við DLG í Danmörku. 



Nánari upplýsingar veitir Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000