2014-11-27 14:00:00 CET

2014-11-27 14:00:03 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Reykjavíkurborg árshlutareikningur janúar - september 2014


Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til
september 2014 var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 27. nóvember. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um
11.085 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 6.063 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 5.022 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu
ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna
hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða. 
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 13.260 mkr sem er 288 mkr
lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok
september samtals 492.443 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 286.716
mkr og eigið fé nam 205.726 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 10.824 mkr. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 377 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að
hún yrði jákvæð um 192 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert
var ráð fyrir, sem nemur 569 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var
neikvæð um 272 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 416 mkr eða
688 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Lakari rekstrarniðurstaða skýrist
meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar en áætlun gerði ráð fyrir
og af tapi af sölu fasteigna sem ekki var áætlað fyrir. 

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til
eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta
teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu
borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf.,
Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita
Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins
bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. 

Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. janúar 2014 kom til framkvæmda
það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði  skylt að skilja á
milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka
náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til
starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta
lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu
Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og
fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi
breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameignleg stoðþjónusta við
dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs
þjónustusviðs. 



Reykjavík, 27. nóvember 2014.





Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321