|
|||
2009-05-19 18:34:35 CEST 2009-05-19 18:35:41 CEST REGULATED INFORMATION Exista hf. - Samþykktir félagsTillögur félagsstjórnar Exista hf. til hluthafafundar félagsins þann 26. maí 2009Dagskrárliður 1: Tillögur um breytingar á samþykktum a.Lagt er til að ákvæði 1. mgr. 11. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem hér segir: Aðalfund skal halda fyrir lok ágúst ár hvert. b.Lagt er til að ákvæði 1. mgr. 12. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem hér segir: Til hluthafafundar skal boða á sannanlegan hátt. Fundarefnis skal getið í fundarboði. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins eða um sameiningu þess við önnur félög eða fyrirtæki má ekki taka til meðferðar á fundum þess nema þess hafi verið getið í fundarboði. Ef taka á til meðferðar tillögu til breytinga á samþykktum félagsins, skal greina meginefni tillögunnar í fundarboði. Hluthafafund skal boða með minnst viku en lengst 4 vikna fyrirvara. Hluthafafundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. c.Lagt til að ákvæði 2. mgr. 19. gr. samþykkta félagsins verði breytt sem hér segir: Eigi síðar en viku fyrir aðalfund skal stjórn félagsins leggja fram ársreikning, ársskýrslu og endurskoðunarskýrslu og gera aðgengilega fyrir hluthafa. |
|||
|