2013-03-01 16:29:47 CET

2013-03-01 16:30:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Ársreikningur 2012


Ársreikningur Byggðastofnunar 2012

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2012, var staðfestur af stjórn
stofnunarinnar 1. mars 2013. 

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr.
347/2000.  Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og
atvinnulífs á landsbyggðinni.  Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að
undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að
markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.
Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra.  Byggðastofnun
fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum.
Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við
atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera
áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og
atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð
svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum. 

Samkvæmt rekstrarreikningi nam tap af rekstri stofnunarinnar 152,8 milljónum
króna á árinu 2012.  Eigið fé í árslok samkvæmt efnahagsreikningi var 2.113,5
milljón króna    Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var
12,55%.  Ákvæði laga um fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að
lágmarki vera 8% af áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ákvæði laga þar um
í lok árs 2012.

Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar
um allt að 2.000 milljónir króna.  Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna
greiddar  til stofnunarinnar í janúar 2012 og eftirstöðvarnar í byrjun janúar
2013. 

Fyrir Hæstarétti Íslands og Héraðsdómi Norðurlands vestra eru nú rekin tvö mál
þar sem tekist er á um lögmæti erlendra lána stofnunarinnar.  Það er álit
Byggðastofnunar og lögmanna hennar að skuldabréf stofnunarinnar séu lán í
erlendri mynt en ekki ólögmæt gengislán.  Ekki hafa verið færð sérstök
varúðarframlög vegna þessara mála.  Nánari er getið um þessi mál í skýringu nr.
17 með ársreikningnum. 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2012:

  -- Tap stofnunarinnar á árinu nam 152,8 milljónum króna en til samanburðar var
     tapið 2011, 236 milljónir króna.
  -- Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 594 milljónir króna samanborið við 640
     milljónir króna hreinar vaxtatekjur á árinu 2011.
  -- Rekstrartekjur námu 193 milljónir og lækkuðu um 126 milljónir króna sem
     skýrist aðallega af 155 milljón króna neikvæðum gengismun.
  -- Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu 488
     milljónum króna.
  -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 445
     milljónum en var til samanburðar 711 milljónir króna árið 2011.
  -- Handbært fé frá rekstri var 639 milljónir króna.
  -- Endanlega töpuð útlán námu 1.325 milljónum króna.
  -- Eignir námu 16.738 milljónum króna og hafa lækkað um 912 milljónir króna
     frá árinu 2011.  Þar af voru útlán 13.422 milljónir króna.
  -- Lántökur námu 14.550 milljónir króna og hafa lækkað um 2.588 milljónir
     króna frá árinu 2011.
  -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 216 mkr. 
  -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 12,55% en skal að
     lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni.

Um ársreikninginn

Í árslok var eiginfjárhlutfall 12,55% eins og að ofan greinir. Ákvæði laga um
fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að lágmarki vera 8% af
áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ákvæði laga þar um í lok árs 2012. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is