2009-09-28 18:53:30 CEST

2009-09-28 18:54:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Árshlutauppgjör Byggðastofnunar 30. júní 2009


Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2009, var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 28. september 2009. 

Tap tímabilsins nam 1.663 mkr.  Samkvæmt árshlutauppgjörinu er eigið fé
stofnunarinnar neikvætt um 118,7 mkr. 

Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar
til júní 2009 
• Tap stofnunarinnar á tímabilinu nam 1.663 mkr.
• Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 425,6 mkr. samanborið við 207,4 mkr.
jákvæðar vaxtatekjur á sama tímabili 2008. 
• Rekstrartekjur námu 310,2 mkr.
• Almenn rekstrargjöld námu 237,6 mkr.
• Framlög í afskriftarreikning útlána og matsbreyting hlutafjár námu 2.161 mkr.
• Eignir námu 22.790 mkr. og hafa lækkað um 518.6 mkr. frá áramótum.  Þar af
voru útlán 18.901 mkr. 
• Skuldir námu 22.909 mkr. og hafa hækkað um 1.145 mkr. frá áramótum.
• Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 374,8 mkr. 
• Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -4,74% en skal að
lágmarki vera 8% 

Um árshlutauppgjörið
Vegna þeirra erfiðleika sem dunið hafa yfir íslenskt efnahagslíf undanfarna
mánuði hefur stofnunin þurft að leggja aukna fjármuni inn á afskriftarreikning
útlána vegna mögulegrar taphættu.  Á tímabilinu nam þessi fjárhæð 1.930 mkr. í
samanburði við 1.237 mkr. allt árið 2008.  Skýrist tap stofnunarinnar og
neikvætt eiginfjárhlutfall á tímabilinu af þessum varúðarfærslum. 


Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 425,6 mkr. og hafa aukist jafnt og þétt
undanfarin ár. 

Nýjar lánveitingar drógust saman á tímabilinu og námu 612 mkr. samanborið við
2.239 mkr. á sama tímabili 2008. 

Í byrjun ársins gaf stofnunin út skuldabréf og bauð í lokuðu útboði og nam
útgáfufjárhæðin 1.000 mkr.  Töluverð umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum
en fyrirhugað er að bæta við skuldabréfaflokkinn síðar á þessu ári. 

Horfur
Fjármálaeftirlitið hefur gefið stofnuninni frest til 8. desember 2009 til að
koma eiginfjárhlutfallinu upp fyrir 8% lágmark. 

Af hálfu stjórnar hefur iðnaðarráðherra verið gerð grein fyrir stöðu mála. 
Nauðsynlegt er að auka eigið fé stofnunarinnar til að uppfylla kröfur laga nr.
161/2002 
um fjármálafyrirtæki um lágmarkseiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.   Verði
það ekki gert leikur verulegur vafi á áframhaldandi rekstrarhæfi
stofnunarinnar. 

Iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra hafa lýst því yfir að ríkisstjórnin hafi
ákveðið að leita heimilda á fjáraukalögum til að tryggja lágmarks
eiginfjárhlutfall stofnunarinnar. 

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is