|
|||
2014-07-04 11:47:27 CEST 2014-07-04 11:48:28 CEST REGULATED INFORMATION FÍ Fasteignafélag slhf. - FyrirtækjafréttirFÍ Fasteignafélag - Tilkynning um viðauka, dags. 2. júlí 2014, við lýsingu dags. 19. júní 2014Útgefandi: FÍ Fasteignafélag slhf., kennitala: 571212-0210, Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík. FÍ Fasteignafélag hefur birt viðauka, dags. 2. júlí 2014, við lýsingu dagsetta 19. júní 2014. Viðaukinn er birtur í tengslum við fyrirhugaða töku viðbótarútgáfu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum FIF 13 01 til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Viðaukinn hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Viðaukinn og lýsingin eru gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af viðaukanum og lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda að Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík í 12 mánuði frá staðfestingu. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu félagsins, http://www.fifasteignir.is/fi-fasteignafelag-slhf.html |
|||
|