2017-02-16 15:18:36 CET

2017-02-16 15:18:36 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Kvika banki hf. - Ársreikningur

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning fyrir árið 2016


Á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017, samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning
samstæðu Kviku banka hf. fyrir árið 2016.

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku:

"Við  erum  stolt  af  þeim  frábæra  árangri  sem  náðst  hefur  í  stefnulegri
uppbyggingu  Kviku, eina sérhæfða  fjárfestingabanka Íslands. Að  baki er fyrsta
heila  rekstrarár Kviku og afkoma ársins gefur okkur góðan byr undir báða vængi.
Hagnaður ársins eftir skatta nam tæpum tveimur milljörðum króna og arðsemi eigin
fjár var 34,7%.

Kvika hefur sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði og eftirspurn er mikil eftir
sérhæfðri þjónustu okkar. Framtíðin er björt fyrir eina sjálfstæða
fjárfestingabanka landsins.

Framúrskarandi árangur starfsfólks Kviku og fjárhagslegur styrkur Kviku
grundvallast á skýrri framtíðarsýn og einbeittri stefnulegri áætlun bankans.
Sterkur grunnur og vönduð vinnubrögð gerir okkur fær um að nýta bestu tækifærin
til áframhaldandi sóknar, öllum hagaðilum til heilla."

Mikill tekjuvöxtur og góð afkoma

Hagnaður  Kviku  árið  2016 nam  1.928 milljónum  króna og arðsemi eiginfjár var
34,7%. Hreinar  rekstrartekjur námu 5.318 milljónum króna á tímabilinu og þar af
voru tekjur á síðari árshelmingi 3.154 milljónir króna.

Hreinar   þóknanatekjur  námu  2.840 milljónum  króna  á  árinu.  Vöxtur  var  í
eignastýringu  á árinu og námu  eignir í stýringu 121 milljarði  króna í lok árs
2016. Þóknanatekjur  fyrirtækjasviðs  jukust  umtalsvert  milli  ára  í  kjölfar
aukinna umsvifa og breyttra áherslna í útlánastarfsemi. Markaðsviðskipti bankans
héldu  sterkri  stöðu  sinni  og  umtalsverður  vöxtur  var  í gjaldeyrismiðlun.
Fyrirtækjaráðgjöf  lauk  stórum  verkefnum  á  árinu,  tengdum  kaupum  og  sölu
fyrirtækja og ráðgjafar á sviði innviða.

Fjárfestingatekjur   námu   1.283 milljónum   króna   á  árinu.  Vaxtatekjur  af
skuldabréfaeign   bankans og  hagnaðarhlutdeild fyrirtækjasviðs  skilaði rúmlega
fjórðungi fjárfestingatekna ársins. Afkoma        af        hlutabréfum       og
hlutdeildarskírteinum  í  sjóðum  nam  484 milljónum  króna eða 12,9% ávöxtun af
meðalstöðu ársins.

Hreinar  vaxtatekjur bankans  voru 1.064 milljónir  króna á  árinu og vaxtamunur
útlána 3,8%.

Rekstrarkostnaður  nam  3.219 milljónum  króna  á  árinu 2016. Rekstrarkostnaður
reglulegrar  starfsemi lækkaði í takt við áætlun  og var 14% lægri á árinu 2016
miðað við mánaðarlegan rekstrarkostnað á seinni helmingi árs 2015.

Sterk fjárhagsleg staða

Í   árslok   2016 námu   heildareignir  samstæðu  Kviku  59.563 milljónum  króna
samanborið  við  61.614 milljónir  króna  í  árslok  2015 og nemur lækkunin 3% á
tímabilinu. Útlán til viðskiptavina jukust á árinu og námu 26 milljörðum króna í
lok  árs 2016. Innlán  frá viðskiptavinum  námu 32.479 milljónum  króna í árslok
2016 samanborið við 30.544 milljónir króna árið 2015.

Lausafjárstaða bankans er sterk og nam lausafjárþekjan (LCR) 152% í lok árs, vel
umfram  kröfur um 90% lágmarksþekju.  Handbært fé í  árslok nam 12.033 milljónum
króna  og lausafjáreignir  og aðrar  auðseljanlegar eignir námu 17.245 milljónum
króna.  Hlutfall  handbærs  fjár,  lausafjáreigna  og  auðseljanlegra  eigna  af
heildarskuldum bankans í árslok var 56%.

Bankinn  var virkur  á fjármagnsmarkaði  á árinu  og bætti  kjör sín  verulega í
reglulegum  víxlaútboðum,  þar  sem  bankinn  gaf  út  víxla að nafnvirði 8.000
milljónir  króna.  Í  árslok  2016 námu  útgefnir  víxlar og víkjandi skuldabréf
bankans 4.494 milljónum króna.

Eigið  fé bankans í  árslok var 7.348 milljónir  króna og jókst úr 6.293 milljón
króna  í árslok  2015, þrátt fyrir  lækkun hlutafjár  að fjárhæð 1.000 milljónir
króna  á  fyrri  árshelmingi  2016. Eiginfjárhlutfall  í lok desember var 20,6%
samanborið   við   23,5% í  árslok  2015. Eiginfjárstaða  bankans  er  sterk  og
eiginfjárhlutfall vel umfram kröfur eftirlitsaðila.

Það helsta úr starfsemi bankans

  * Kvika var fremst í flokki íslenskra banka og fjármálafyrirtækja á sviði
    eignastýringar árið 2016, að mati breska fjármálatímaritsins World Finance.
    Tímaritið útnefnir árlega fyrirtæki fyrir framúrskarandi árangur og var
    þetta þriðja árið í röð sem bankinn fær viðurkenninguna.
  * Kvika undirritaði samstarfssamning við tvö alþjóðleg eignastýringar-
    fyrirtæki á árinu, T. Rowe Price og Wellington Management, um sölu og
    dreifingu á sjóðum þeirra. Þessir samningar eru til viðbótar við 13 ára
    samvinnu Kviku við Credit Suisse.
  * Kvika rannsakaði þjóðhagslega hagkvæmni sæstrengs til Bretlands fyrir
    atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Skýrslan var unnin af sérfræðingum
    Kviku í samstarfi við Pöyry, sem er eitt virtasta ráðgjafafyrirtæki Evrópu á
    sviði orkumála.
  * Kvika hafði umsjón með söluferli Nova stærsta farsímafélags Íslands.
  * Kvika var ráðgjafi við sölu á ISS Ísland og leiddi söluferlið af hálfu
    seljanda.
  * Kvika var ráðgjafi GE Capital við kaup á Skakkaturni ehf. sem er umboðsaðili
    Apple á Íslandi og rekur verslanir undir nafninu Epli.
  * Kvika var viðurkenndur ráðgjafi Iceland Seafood International á First North
    markaðnum, sem er norrænn hliðarmarkaður fyrir hlutabréfaviðskipti.
  * Kvika var ráðgjafi við sölu á 40% hlut í Iceland Seafood International.
  * Kvika var ráðgjafi eiganda Húsafells við fjármögnun ferðaþjónustu í
    Húsafelli.
  * Júpíter rekstrarfélag hf., dótturfélag Kviku, stofnaði tvo sjóði í sérhæfðum
    fjárfestingum á fyrri hluta ársins en þar á meðal var JR Veðskuldabréf I sem
    sérhæfir sig í kaupum á veðskuldabréfum fyrirtækja.
  * Akta sjóðir hf., rekstrarfélag verðbréfasjóða, hóf starfsemi í samstarfi við
    Kviku.
Nánari  upplýsingar  veitir  Sigurður  Atli  Jónsson,  forstjóri  Kviku  í  síma
540 3230 eða 821 2051.



Um Kviku

Kvika   er   sérhæfður  fjárfestingabanki  sem  sinnir  þörfum  viðskiptavina  á
afmörkuðum  syllum með fagþekkingu  og sérhæfðu vöruframboði.  Burðarás Kviku er
öflug  eignastýring  og  bankinn  veitir  sparifjár-  og innlánseigendum alhliða
þjónustu.  Hjá  samstæðu  Kviku  starfar  samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær
árangri  í krafti menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Forstjóri er
Sigurður  Atli  Jónsson  og  formaður  stjórnar er Þorsteinn Pálsson. Eignarhald
Kviku  er gagnsætt og er hann eini bankinn sem er að nær fullu í eigu einkaaðila
s.s. lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.




[]