2017-02-16 15:50:04 CET

2017-02-16 15:50:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Annual report (is)

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2016


Afkoma ársins 2016



  -- Rekstrartekjur ársins 11.859 m.kr. en 10.701 m.kr. árið 2015
  -- 562 m.kr. hagnaður á árinu á móti 230 m.kr. árið áður
  -- EBITDA afkoma var 1.195 m.kr. en 726 m.kr. árið 2015
  -- Eigið fé 4.954 m.kr. og eiginfjárhlutfall 59%



Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.  Sláturfélag
Suðurlands keypti 50% hlut í framleiðslufyrirtækinu Hollt og gott ehf. þann 31.
ágúst 2015 og á frá þeim tíma 100% hlut í félaginu.  Hafa þarf það í huga við
samanburð rekstrar- og efnahagsliða milli ára. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2016 var 562 m.kr. skv.
rekstarreikningi.  Árið áður var 230 m.kr. hagnaður.  Eigið fé er 4.954 m.kr.
og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 59%. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 11.859 m.kr. árið 2016, en
10.701 m.kr. árið áður og hækka því um tæp 11%.  Aðrar tekjur voru 14 m.kr. en
21 m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 5.877 m.kr. en 5.594 m.kr. árið áður.  Launakostnaður
var 2.931 m.kr. og hækkaði um tæp 15%, annar rekstrarkostnaður var 1.870 m.kr.
og hækkaði um rúmt 1%.  Afskriftir hækkuðu um tæp 13%.  Rekstrarhagnaður án
fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 823 m.kr., en 396 m.kr. árið áður. 
Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.195 m.kr.  en var
726 m.kr. árið áður. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 123 m.kr., en voru 113 m.kr. árið
áður. Gengistap var 6 m.kr. samanborið við 1 m.kr. gengishagnað árið áður. 

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var engin, en jákvæð um 1 m.kr. árið áður.
 Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 138 m.kr. en 55 m.kr. árið áður. 
Hagnaður af rekstri ársins var 562 m.kr. en 230 m.kr. árið áður. Aukinn
hagnaður milli ára skýrist m.a. af betri afkomu dótturfélaga. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.188 m.kr. árið 2016 samanborið við
724 m.kr. árið 2015.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2016 voru
8.349 m.kr. og eiginfjárhlutfall 59%.   Veltufjárhlutfall var 2,7 árið 2016, en
2,1 árið áður. 

Fjárfest var á árinu fyrir 433 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 633
m.kr. árið áður.  Seldar voru eignir fyrir 14 m.kr.  Á árinu var fjárfest í
fasteignum fyrir 203 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 181 m.kr. og bifreiðum
49 m.kr. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2016 var í aprílmánuði greiddur
12,0% arður af B-deild stofnsjóðs alls 22 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 16 m.kr. 

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið hefur
undanþágu frá skyldunni til þess að vera með viðurkenndan ráðgjafa skv. reglum
First North. Undanþágan tók gildi 1. janúar 2017. Sláturfélagið birtir
upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu fyrri
árshelmings ársins 2017 þann 24. ágúst 2017. 





Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 17. mars n.k. 
Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 12,1% arður af B-deild
stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 2,1%, alls 21,8 m.kr. eða 0,12 kr. á hvern
útgefin hlut og reiknaðir 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs,
alls 17,0 m.kr. 



Staða og horfur

Afkoma Sláturfélagsins batnaði milli ára og er fjárhagsstaða félagsins sterk
með 59% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,7. Greiðslubyrði lána er lág
miðað við greiðslugetu félagsins og skuldahlutfall lágt. Góð fjárhagsstaða
gerir félaginu því kleift að takast á við fjárfestingar án nýrrar lántöku. 

Innflutningur á alifuglakjöti, svínakjöti og nautakjöti er umtalsverður og
hefur nú þegar haft neikvæð áhrif á rekstur afurðahluta félagsins. Gert er ráð
fyrir að nýr EB tollasamningur muni hafa umtalsverð neikvæð áhrif á innlendum
kjötmarkaði á næstu árum enda um verulega magnaukningu að ræða.  Sterk staða
krónunnar hefur einnig haft neikvæð áhrif á verðmæti útflutnings hjá félaginu
og gert ráð fyrir að svo verði áfram á árinu 2017. 

Staða Sláturfélagsins á kjötmarkaði er samt sem áður sterk og ímynd meðal
neytenda og bænda góð en félagið fagnaði 110 ára afmæli í janúar s.l. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar stendur frammi fyrir nýrri áskorun á
vormánuðum er nýr erlendur smásölurisi kemur inn á markaðinn.  Gert er ráð
fyrir að afkoma versni vegna aukinnar samkeppni og lægra verðs á innfluttum
matvörum. 

Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst hratt upp og er vaxandi þáttur í
starfssemi félagsins. Sala á áburði, kjarnfóðri, rúlluplasti og öðrum
rekstarvörum bænda gengur vel og góð tækifæri til vaxtar á komandi árum. 



Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2017                        17. mars 2017

Janúar – júní 2017 uppgjör         24. ágúst 2017

Júlí – desember 2017 uppgjör     22. febrúar 2018

Aðalfundur 2018                        23. mars 2018





Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is