|
|||
![]() |
|||
2017-02-16 16:33:49 CET 2017-02-16 16:33:49 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - ÁrsreikningurSjóvá-Almennar tryggingar hf. - Ársuppgjör 2016Afkoma af fjárfestingastarfsemi umfram væntingar Vátryggingarekstur á réttri leið Hagnaður ársins 2.690 m.kr. -- Samsett hlutfall 100,9% -- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 646 m.kr. -- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 2.459 m.kr. -- Afkoma fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna lækkar úr 3.935 m.kr. árið 2015 í 3.105 m.kr. árið 2016 -- Heildarhagnaður ársins 2.690 m.kr. eða 1,75 kr. á hlut -- Ávöxtun verðbréfasafns 10,1% á árinu -- 15,9% arðsemi eigin fjár -- Horfur fyrir árið 2017 gera ráð fyrir að samsett hlutfall verði á bilinu 97-99% og að hagnaður fyrir skatta verði meiri en 2.500 m.kr. -- Stjórn leggur til arðgreiðslu sem nemur 1,75 kr. á hlut eða um 2.600 m.kr. Hagnaður 1.124 m.kr. á fjórða ársfjórðungi -- Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta 176 m.kr. -- Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 1.113 m.kr. -- Ávöxtun verðbréfasafns 3,8% -- Ávöxtun af verðbréfasafni var umfram væntingar m.a. vegna endurmats á óskráðum eignum Hermann Björnsson, forstjóri: „Afkoma Sjóvár fyrir árið 2016 var óvenju góð sem helgast fyrst og fremst af ávöxtun fjárfestingareigna sem var umfram væntingar. Afkoman af vátryggingastarfsemi fyrir árið var ekki langt frá birtum horfum í upphafi síðasta árs. Aðgerðir á liðnu ári til lækkunar á samsettu hlutfalli báru árangur og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Tjónshlutfallið er hærra en við teljum ásættanlegt en þar hafa aukin umsvif í þjóðfélaginu áhrif. Fjölgun erlendra ferðamanna hefur þar líka sitt að segja. Aukningin á milli ára í umferð um hringveginn í fyrra var sú mesta frá upphafi mælinga og vísbendingar eru um að sú þróun muni halda áfram. Innviðirnir verða að fylgja þessari stórauknu umferð því með henni aukast líkur á alvarlegu slysi en slys á erlendum ferðamönnum eiga sér flest stað í dreifbýli. Alvarlegum umferðarslysum sem ferðamenn lenda í hefur fjölgað meira en sem nemur fjölgun ferðamanna undanfarin tvö ár og það er þróun sem við eigum ekki að sætta okkur við. Það er forgangsmál að tryggja öryggi allra sem ferðast um landið með forvörnum og frekari fjárfestingum í vegakerfinu og öðrum innviðum,“ segir Hermann. Helstu niðurstöður og lykiltölur 4F 4F % 2016 2015 % 2016 2015 Iðgjöld tímabilsins 4.051 3.490 16% 15.399 14.076 9,4% Eigin iðgjöld 3.841 3.263 18% 14.488 13.317 8,8% Fjárfestingartekjur 1.359 1.208 13% 3.434 4.623 -25,7% Þar af fjárfestingartekjur af 183 46 298% 777 751 3,5% vátryggingaskuld Heildartekjur 5.243 4.477 17% 18.072 17.992 0,4% Tjón tímabilsins -3.008 -3.382 -11% -11.259 -11.239 0,2% Eigin tjón -2.999 -2.898 4% -11.261 -10.596 6,3% Rekstrarkostnaður -954 -836 14% -3.706 -3.462 7,1% Afskrift óefnislegra eigna -10 -3.519 -39 -3.830 Heildargjöld -3.964 -7.254 -15.007 -17.888 Afkoma fyrir skatta 1.279 -2.776 3.065 105 Afkoma eftir skatta 1.124 -2.016 2.690 657 Tjónahlutfall 74,2% 96,9% 73,1% 79,8% Endurtryggingahlutfall 3,9% -7,6% 5,0% 0,4% Kostnaðarhlutfall 22,0% 25,8% 22,8% 23,6% Samsett hlutfall 100,1% 115,2% 100,9% 103,9% Ávöxtun eigin fjár 26,6% -23,2% 15,9% 3,9% Hagnaður á hlut 0,73 -1,28 1,75 0,42 2016 2015 Verðbréf 36.204 33.785 Viðskiptakröfur 4.339 4.078 Handbært fé 1.063 1.385 Heildareignir 43.303 41.435 Eigið fé 17.454 16.291 Eiginfjárhlutfall 40,3% 39,3% Gjaldþolshlutfall SII 1,91 1,86 Gjaldþolshlutfall SII eftir arðgreiðslu 1,61 1,79 Fjárhæðir eru í milljónum króna Kynningarfundur 16. febrúar kl. 16:15 Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi á árinu 2016, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar Aðalfundur 17. mars kl. 15:00 Aðalfundur Sjóvár verður haldinn föstudaginn 17. mars kl. 15:00 í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 6. hæð. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is. -------- Samstæðureikningur Sjóvár fyrir árið 2016 var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017. |
|||
|