2017-02-16 16:41:26 CET

2017-02-16 16:41:26 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Tryggingamiðstöðin hf. - Ársreikningur

Hagnaður TM árið 2016 nam 2,6 milljörðum króna.


Samsett hlutfall ársins 97%.

Á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017 samþykkti stjórn og forstjóri TM
ársreikning félagsins fyrir árið 2016. 



Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Á heildina litið er ég mjög ánægður með niðurstöðu ársins, bæði hvað varðar
afkomu af vátryggingastarfsemi og ávöxtun fjárfestingaeigna. Þrátt fyrir
tjónaþungan fjórða ársfjórðung þar sem tjónaþróun slysatrygginga tók verulegan
kipp og stórtjón varð í bruna á Snæfellsnesi í nóvember náum við að skila
samsettu hlutfalli á upphaflegri áætlun ársins. Ávöxtun fjárfestingaeigna var
einnig mjög góð sem fyrr. Arðsemi eigin fjár var góð og yfir langtímamarkmiði
félagsins sjötta árið í röð.“ 



Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins 2016 voru eftirfarandi:

                  4F 2016  4F 2015      ∆    ∆%      2016      2015      ∆    ∆%
Eigin iðgjöld       3.404    3.203    201    6%    14.060    12.635  1.425   11%
Fjárfestingatekj    1.168    1.287  (119)   -9%     3.178     4.061  (883)  -22%
ur                                                                              
Aðrar tekjur            9       15    (6)  -42%        41        44    (3)   -8%
Heildartekjur       4.581    4.506     75    2%    17.279    16.741    538    3%
Eigin tjón        (2.999)  (2.723)  (276)   10%  (10.719)  (10.318)  (401)    4%
Rekstrarkostnaðu    (823)    (807)   (16)    2%   (3.303)   (3.099)  (204)    7%
r                                                                               
Fjármagnsgjöld       (44)     (21)   (23)  110%     (247)     (158)   (89)   56%
Virðisrýrnun          (8)       56   (64)            (57)         1   (58)      
 útlána                                                                         
Heildargjöld      (3.875)  (3.495)  (380)   11%  (14.326)  (13.573)  (753)    6%
Hagnaður fyrir        706    1.011  (305)  -30%     2.953     3.167  (214)   -7%
 tekjuskatt                                                                     
Tekjuskattur         (93)    (160)     67  -42%     (356)     (340)   (16)    5%
Hagnaður              614      851  (237)  -28%     2.597     2.827  (230)   -8%
                                                                                
Fjárhæðir eru í milljónum                                                       
 króna.                                                                         



Samsett hlutfall ársins 97%.

Árið 2015 var samsett hlutfall TM 103%, en hlutfallið fór þá í fyrsta skipti
yfir 100% síðan árið 2009. Það er þekkt að með auknum umsvifum og hita í
hagkerfinu hækkar tjónatíðni og ljóst að bregðast þurfti við þeirri þróun á
árinu 2016. Á seinni hluta ársins 2015 var m.a. gripið til skipulagsbreytinga í
því skyni að auka enn á fagleg vinnubrögð í áhættuverðlagningu hjá félaginu.
Afrakstur þess og annarra aðgerða er viðsnúningur í framlegð af
vátryggingastarfsemi upp á 836 m.kr. og samsett hlutfall ársins er 97%. 

Allir greinarflokkar utan eignatrygginga og slysatrygginga skila betri afkomu
en árið 2015, en hins vegar er afkoma af frjálsum ökutækjatryggingum (kaskó) og
slysatryggingum áhyggjuefni. Verkefni ársins 2017 verður að ná viðunandi afkomu
í öllum greinaflokkum í samræmi við langtímamarkmið félagsins um 95% samsett
hlutfall. 



Mjög góð afkoma af fjárfestingum á fjórða ársfjórðungi og 13% ávöxtun á árinu.

Fjárfestingatekjur námu 1.168 m.kr. á fjórða ársfjórðungi sem jafngildir 4,6%
ávöxtun. Góð afkoma af hlutabréfum og fasteignasjóðum skýrir góða afkomu á
fjórðungnum. Afkoma af þessum eignaflokkum skýrir um þrjá fjórðu af
fjárfestingatekjum fjórðungsins. Innlendir verðbréfamarkaðir voru hagfelldir á
fjórða ársfjórðungi en þá hækkaði ríkisskuldabréfavísitala Gamma um 2,1%,
hlutabréfavísitala Gamma hækkaði um 5,1% og markaðsvísitala Gamma hækkaði um
2,9%. 

Fjárfestingatekjur námu 3.178 m.kr. á árinu 2016. Það jafngildir 13,0% ávöxtun
fjárfestinga en til samanburðar hækkaði markaðsvísitala Gamma um 4,3% á árinu.
Ávöxtun fjárfestingaeigna TM var því mjög góð á árinu 2016. 



Lykiltölur fjórða ársfjórðungs og ársins 2016 voru eftirfarandi:

                                 4F 2016  4F 2015   2016   2015
Hagnaður á hlut (kr.)               0,90     1,17   3,80   3,84
Arðsemi eigin fjár (m.v. 12m)      21,5%    31,3%  22,4%  24,2%
Eiginfjárhlutfall                    39%      38%    39%    38%
Handbært fé frá rekstri                            3.032  2.557
Vátryggingastarfssemi                                          
Tjónshlutfall                        88%      85%    76%    82%
Kostnaðarhlutfall                    21%      22%    21%    22%
Samsett hlutfall                    109%     107%    97%   103%
Rekstrarafkoma                     (292)    (359)    903    (1)
Framlegð                           (318)    (218)    420  (416)
Fjárfestingar                                                  
Ávöxtun                             4,6%     5,0%  13,0%  16,5%
Hagnaður/tap                         614      851  2.597  2.827
                                                               
Fjárhæðir eru í milljónum króna                                



Tillaga gerð um 1.500 milljóna króna arðgreiðslu.

Stjórn TM hefur sett fram skýr markmið um áhættuvilja með vikmörkum sem
auðveldar stýringu á heildaráhættu félagsins. Markmið um gjaldþolshlutfall
samkvæmt áhættuviljanum er 150% og vikmörkin eru 140% til 170%. 

Arðgreiðslutillaga ársins 2017 byggir á þessum markmiðum og leggur stjórn TM
til 1.500 m.kr. arðgreiðslu á árinu 2017. Að auki leggur stjórn til að hún fái
heimild til kaupa á eigin bréfum fyrir allt að 1.000 m.kr. Endanleg fjárhæð
endurkaupanna mun ráðast af möguleikum félagsins við að finna hagkvæmustu
fjármagnsskipan. Ítarleg endurkaupaáætlun verður lögð fyrir á aðalfundi
félagsins sem haldinn verður 16. mars næstkomandi. 



Áætlaður hagnaður ársins 2017 er 2,8 milljarðar króna fyrir tekjuskatt.

                                                                                
             1F 2017  2F 2017  3F 2017  4F 2017    Á 2017      2016      ∆    ∆%
Eigin          3.597    3.782    4.117    3.828    15.324    14.060  1.264    9%
 iðgjöld                                                                        
Fjárfesting      404      772      401      770     2.347     3.178  (831)  -26%
atekjur                                                                         
Aðrar             10        9        9        9        38        41    (3)   -8%
 tekjur                                                                         
Heildartekj    4.011    4.563    4.527    4.608    17.709    17.279    430    2%
ur                                                                              
Eigin tjón   (2.996)  (2.763)  (2.754)  (2.900)  (11.413)  (10.718)  (695)    6%
Rekstrarkos    (898)    (856)    (762)    (820)   (3.337)   (3.303)   (34)    1%
tnaður                                                                          
Fjármagnsgj     (40)     (40)     (40)     (40)     (159)     (247)     88  -36%
öld                                                                             
Virðisrýrnu      (5)      (5)      (5)      (5)      (19)      (57)     38  -67%
n útlána                                                                        
Heildargjöl  (3.938)  (3.664)  (3.561)  (3.765)  (14.928)  (14.326)  (602)    4%
d                                                                               
Hagnaður          73      899      966      843     2.781     2.953  (172)   -6%
 fyrir                                                                          
 tekjuskatt                                                                     
                                                                                
Fjárhæðir eru í                                                                 
 milljónum króna.                                                               



Lykiltölur ársins 2017 eru áætlaðar eftirfarandi:

                                                                        
                       1F 2017  2F 2017  3F 2017  4F 2017  Á 2017   2016
Vátryggingastarfssemi                                                   
Tjónshlutfall              83%      73%      67%      76%     74%    76%
Kostnaðarhlutfall          21%      20%      18%      19%     19%    21%
Samsett hlutfall          104%      93%      84%      95%     94%    97%
Framlegð                 (162)      272      638      193     942    420
Fjárfestingar                                                           
Ávöxtun                   1,6%     3,0%     1,5%     2,9%    9,3%  13,0%
                                                                        
                                                                        



Kynningarfundur kl. 08:30 föstudaginn 17. febrúar.

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi og
á árinu 2016 þann 17. febrúar kl. 08:30. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM
að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar kynnir Sigurður Viðarsson forstjóri uppgjörið og
svarar spurningum. 

Ársreikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins tm.is.
Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf
kynningarfundar. Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: 

https://global.gotomeeting.com/join/509690093



Aðalfundur 16. mars 2017.

Aðalfundur TM árið 2017 verður haldinn þann 16. mars næstkomandi kl. 16:00 á
Grand Hótel Reykjavík. 



Fjárhagsdagatal 2017.

1. ársfjórðungur: 10. maí 2017.

2. ársfjórðungur: 24. ágúst 2017.

3. ársfjórðungur: 26. október 2017.

4. ársfjórðungur: 16. febrúar 2018.



Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.

s: 515-2609.

sigurður@tm.is.