2017-02-16 16:58:37 CET

2017-02-16 16:58:37 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Vátryggingafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Vátryggingafélag Íslands hf. - Ársuppgjör 2016


Afkoma VÍS á árinu 2016

Samstæðuársreikningur félagsins fyrir árið 2016 var staðfestur af stjórn og
forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 16. febrúar 2017.  Verður
ársreikningurinn lagður fyrir aðalfund þann 15. mars 2017 til staðfestingar. 

Helstu niðurstöður ársins 2016

  -- Hagnaður ársins 2016 nam 1.459 m.kr. samanborið við 2.076 m.kr. hagnað árið
     2015.
  -- Samsett hlutfall var 101,7% en var 101,5% árið áður. 
  -- Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 1.997 m.kr. samanborið við 4.076
     m.kr.árið 2015.
  -- Hagnaður á hlut nam 0,65.

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs

  -- Hagnaður tímbilsins nam 867 m.kr. samanborið við 86 m.kr. á sama tímabili í
     fyrra.
  -- Samsett hlutfall var 100,4% en var 92,2% í fyrra.
  -- Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 959 m.kr. samanborið við 1.103 m.kr. á
     sama tíma 2015.

Jakob Sigurðsson, forstjóri

„Það er jákvætt að iðgjöld eru farin að aukast eftir nokkurra ára stöðnun, en
eigin iðgjöld jukust um 10,2% á milli ára. Vöxturinn kemur til bæði vegna hærra
meðaliðgjalds og fjölgunar skírteina.  Viðskiptavinum félagsins er að fjölga og
einnig eru núverandi viðskiptavinir í meiri viðskiptum við okkur en áður. 
Samsett hlutfall er heldur hærra en það var árið 2015, og það verður áfram
verkefni félagsins að ná því niður.  Ávöxtun fjárfestingaeigna gekk nokkuð vel
við erfiðar markaðsaðstæður lengst af á árinu, og nam 7,1%.  Gjaldmiðlatap af
eignum sem tilheyra erlendri starfsemi félagsins hefur neikvæð áhrif á afkomu
fjárfestingastarfseminnar, en það nam 641 m.kr. á árinu. 

Á fjórða ársfjórðungi gekk rekstur félagsins ágætlega og nam hagnaðurinn 867
m.kr. sem er mesti hagnaður á einum fjórðungi síðan á þriðja ársfjórðungi 2013.
 Góð afkoma skýrist af ágætri ávöxtun fjáreigna og betri afkomu af
vátryggingarekstri en oft áður. 

Nú stendur yfir rýni og endurskoðun á stefnu VÍS með víðtækri þátttöku stjórnar
og starfsfólks. Við gerum ráð fyrir að kynna niðurstöður þeirrar vinnu á
vormánuðum. Auður VÍS liggur ekki síst í frábæru starfsfólki um allt land sem
hefur unnið frábært starf í krefjandi verkefnum. Það er ekki síst þeim að þakka
að VÍS er jafn öflugt félag og raun ber vitni.“ 

Tillaga stjórnar til aðalfundar um arðgreiðslu

Stjórn félagsins leggur til að félagið greiði hluthöfum arð sem nemur kr. 0,46
á hlut. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er um 1.023 milljónir króna.  Félagið
sér vaxtartækifæri á markaðnum og telur arðstillöguna ekki skerða möguleika
félagsins til nýtingar þeirra. 

Horfur

Ágætur iðgjaldavöxtur var á árinu 2016 og er gert ráð fyrir að iðgjöld haldi
áfram að vaxa á árinu 2017.  Reiknað er með að samsett hlutfall verði undir
100%. 

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla
3, 5. hæð, þann 17. febrúar n.k. kl. 8:30. Þar munu Jakob Sigurðsson forstjóri,
Guðmar Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Tryggvi Guðbrandsson
forstöðumaður fjárfestinga kynna afkomu félagsins og svara spurningum.
Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á vef VÍS:
www.vis.is 

Fjárhagsdagatal

Viðburður                                Dagsetning:

Aðalfundur 2017                           15. mars 2017

  1. ársfjórðungur                         2. maí 2017
  2. ársfjórðungur                    24. ágúst 2017
  3. ársfjórðungur                 24. október 2017

Ársuppgjör 2017                              8. vika 2017



Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Herbertsdóttir í síma 660-5191 og í
netfangi fjarfestatengsl@vis.is.