2012-03-29 10:28:00 CEST

2012-03-29 10:29:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2011


 Lykiltölur úr ársreikningum 2007 - 2011



Rekstrarreikningur                 2011     2010     2009     2008     2007   
Tekjur                             43.032   41.468   39.189   34.714   31.092 
Rekstrargjöld                      -4.771   -4.359   -4.464   -5.656   -3.169 
Afskriftir                         -4.785   -4.785   -4.785   -4.766   -4.749 
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld   -47.788  -37.247  -67.959  -98.648  -50.654
Hagnaður fyrir skatta              -14.312  -4.923   -38.019  -74.357  -27.530
Tekjuskattur                       0        0        0        0        0      
Hagnaður ársins                    -14.312  -4.923   -38.019  -74.357  -27.530
Efnahagsreikningur                                                            
Fastafjármunir                     445.093  449.879  454.664  459.450  460.915
Veltufjármunir                     9.038    12.803   14.207   3.637    4.316  
Eignir samtals                     454.131  462.682  463.871  463.087  465.231
Eigið fé                           -34.692  -41.380  -61.457  -61.437  -19.080
Langtímaskuldir og skuldbindingar  437.761  453.948  482.282  477.152  440.713
Skammtímaskuldir                   51.062   50.114   48.046   47.373   43.598 
Eigið fé og skuldir samtals        454.131  462.682  463.871  463.087  465.231
Yfirlit um sjóðstreymi                                                        
Handbært fé frá (til) rekstri      14.727   11.996   8.463    5.992    -3.864 
Fjárfestingahreyfingar             0        0        0        -3.301   -425   
Fjármögnunarhreyfingar             -18.506  -13.434  2.097    817      3.323  
Handbært fé í árslok               8.974    12.753   14.191   3.631    123    
Kennitölur                                                                    
Veltufjárhlutfall                  0,18     0,26     0,30     0,08     0,1    
Eiginfjárhlutfall                  -7,64    -8,94%   -13,11%  -13,27%  -4,10% 



Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla
(IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu. 

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2011 var staðfestur af stjórn félagsins
í dag, 28. mars 2012. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á árinu 2011 var 14.312 þús. kr. og í lok þess var eigið fé
neikvætt um sem nam 34.692 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu
tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin
mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 27
milljónir. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 478,7 millj.
kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á
greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru kr. 54.006.000 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með
vísitölu neysluverðs. 

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.