2024-04-30 22:56:50 CEST

2024-04-30 22:56:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 18 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 18. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 407.602 eigin hluti að kaupverði 31.077.752 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
29/4/2411:47100.00076,507.650.0005.242.398
29/4/2413:21100.00076,507.650.0005.342.398
30/4/2410:26100.00076,007.600.0005.442.398
30/4/2411:25100.00076,007.600.0005.542.398
30/4/2413:217.60276,00577.7525.550.000
Samtals 407.602 31.077.7525.550.000


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 19. mars 2024, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 5.550.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna.

Reitir hafa nú keypt samtals 5.550.000 eigin hluti fyrir samtals 434.574.173 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 16.000.000 eigin hluti fyrir 1.291.474.173 kr.

Reitir eiga nú samtals 5.550.000 eigin hluti, eða um 0,78% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 706.000.000.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.