|
|||
2012-08-23 17:42:23 CEST 2012-08-23 17:43:24 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 26.júlí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 29 ágúst nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags 23. ágúst. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 106,967300 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 31. ágúst 2012 (krafa 2,77%1 Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). 1 Hreint verð (e. clean price) er 103,56. |
|||
|