2015-03-26 22:10:31 CET

2015-03-26 22:11:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Niðurstöður hluthafafunda

Sjóvá - Leiðrétting við frétt 2015-03-26 19:52:02


Tímamörk arðsúthlutunar

Í áður birtri frétt um helstu niðurstöður aðalfundar í Sjóvá-Almennum
tryggingum hf. þann 26. mars 2015 láðist að geta um tímamörk arðsúthlutunar í
tengslum við tillögu um arðgreiðslu sem samþykkt var á fundinum. Niðurstöður
fundarins varðandi arðgreiðslu voru þessar: 

Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar um arðgreiðslu sem nemur um 4 milljörðum
króna. Arðsfjárhæð nemur kr. 2,51 á hlut fyrir árið 2014. Arðsákvörðunardagur
er 26. mars 2015 og þar af leiðir að skráðir hluthafar í lok dags. 30. mars
2015, sem telst arðsréttindadagur, eiga rétt á arðgreiðslu. Fyrsti
viðskiptadagur eftir arðsákvörðunardag er 27. mars 2015 og er hann
arðleysisdagur. Útborgunardagur arðs er 16. apríl 2015.