|
|||
2009-05-08 17:54:02 CEST 2009-05-08 17:55:12 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0915Miðvikudaginn 13. maí kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 20.000 milljónum króna að nafnverði. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. maí 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisvíxla: Flokkur RIKV 09 0915 Gjalddagi 15.9.2009 Lánstími 4 mánuðir Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi mánudaginn 18. maí 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9635. |
|||
|