|
|||
2009-05-08 19:56:39 CEST 2009-05-08 19:57:46 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - ÁrsreikningurUppgjör fyrsta ársfjórðungs 2009Afkoma Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi 2009 * Niðurstaðan betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir mjög krefjandi rekstrarumhverfi. * Besta rekstrarafkoma íslenska flugfélagsins Icelandair ehf. á fyrsta ársfjórðungi frá því að félagið var stofnað í núverandi mynd * Travel Service var ekki hluti af Icelandair Group á fyrsta ársfjórðungi 2008 * Heildarvelta félagsins var 20,7 milljarðar króna og jókst um 48% frá sama tíma í fyrra * EBITDA var neikvæð um 2,3 milljarða en var neikvæð um 0,9 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Áætlun fjórðungsins gerði ráð fyrir neikvæðri EBITDA að fjárhæð 4,1 milljarðar króna * EBIT var neikvæð um 3,5 milljarða króna en var neikvæð um 1,7 milljarða króna á sama tíma í fyrra * Tap eftir skatta var 3,6 milljarðar króna en var 1,7 milljarðar króna á sama tíma í fyrra * Handbært fé í lok ársfjórðungsins var 2,8 milljarðar króna, en var 3,3 milljarðar á sama tíma í fyrra * Eignir voru 98,1 milljarður króna í lok mars 2009 samanborið við 98,8 milljarða króna í árslok 2008 * Eiginfjárhlutfall var 17,2 % í lok mars 2009, en var 20,3% í lok ársins 2008 * EBITDA ársins 2009 áætluð um 6 milljarðar króna |
|||
|