|
|||
2014-05-16 18:13:47 CEST 2014-05-16 18:14:48 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirVÍS semur um framkvæmd á endurkaupaáætlun félagsinsVátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) hefur samið við H.F. Verðbréf hf. um framkvæmd á endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um þann 13. maí 2014. Mun H.F. Verðbréf hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu, sbr. viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, sem m.a. fjallar um viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum. Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði kr. 55.000.000 hlutir, en það jafngildir um 2,2% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 500.000.000. Endurkaupaáætlunin gildir til aðalfundar félagsins 2015 nema kaupum samkvæmt áætluninni sé lokið fyrir þann tíma. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin hafa farið fram. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verður að hámarki kr. 2.250.810 hlutir að nafnverði, sem eru 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í apríl 2014. Verð fyrir hvern hlut getur að hámarki verið síðasta skráða dagslokagengi áður en kaup fara fram og hæsta fyrirliggjandi óháða boð í þeim viðskiptakerfum sem kaupin fara fram. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is. |
|||
|