2009-05-08 13:58:44 CEST

2009-05-08 13:59:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Langanesbyggð - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2008 var tekinn til fyrri umræðu af
hreppsnefnd fimmtudaginn 7. maí 2009 og vísað til seinni umræðu. Samkvæmt
sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn. Seinni umræða fer fram miðvikudaginn 20. maí nk.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir
alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr.
45/1998 

Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er
fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og
Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að
hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra
fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B
hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita,
Hafnarsjóður, Naust og Fræ ehf. 

Tekjur sveitarfélagsins voru nokkuð undir áætlun, eða 40 millj. kr. í
samanteknum A og B hluta. Að sama skapi eru rekstrargjöld 34 millj. kr. lægri
en áætlun gerði ráð fyrir. 

Samkvæmt ársreikningi var afkoma fyrir fjármagnsliði um 5 millj. kr. lakari en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir í samanteknum A og B hluta. Fjármagnsgjöld
umfram fjármagnstekjur voru 75 og rekstrarniðurstaða 80 millj. kr. lakari en
gert var ráð fyrir í áætlun. 

Frekari upplýsingar veitir:
Björn Guðmundur Björnsson, sveitarstjóri bjorngb@langanesbyggd.is, í síma 468
1220 eða 866 7813.