2015-12-07 16:37:11 CET

2015-12-07 16:37:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 49. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 254.370 eigin hluti fyrir
5,9 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave  Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
2.12.2015  12:52    215.570       23,20     5.001.22          21.998.127        
                                               4                                
--------------------------------------------------------------------------------
3.12.2015  15:30     11.500       23,35      268.525          22.009.627        
--------------------------------------------------------------------------------
4.12.2015  11:02     27.300       23,35      637.455          22.036.927        
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             254.370                 5.907.20                            
                                               4                                
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar þann dag. 

TM hefur nú keypt samtals 22.036.927 hluti í félaginu sem samsvarar 71,1% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 490,9 milljónum króna. TM á nú samtals 3,0% af
heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en
31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og
II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og
markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is