2008-10-11 14:01:01 CEST

2008-10-11 14:01:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur hf. - Áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung 2008



*           Áætluð sala er 87 milljónir Bandaríkjadala, eykst um 6%
  frá sama tímabili í fyrra
*           Áætlaður rekstrarhagnaður er 15 milljónir Bandaríkjadala,
  eykst um 79%
*           Áætlaður hagnaður tímabilsins er 12 milljónir
  Bandaríkjadala, eykst um 480% frá sama tímabili í fyrra
*           EBITDA er áætluð 20 milljónir, eykst um 43%



Á stjórnarfundi  sem  fór fram  10.  október, var  ákveðið  að  birta
áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung. Þetta er  gert
vegna mjög óvenjulegra  aðstæðna á  fjármálamörkuðum og  til þess  að
innherjar geti átt  viðskipti. Unnið  er að  gerð uppgjörs  félagsins
fyrir þriðja ársfjórðung. Áætlaðar  niðurstöður miðast við  rauntölur
fyrir júlí og  ágúst og  áætlun fyrir september.  Undir liðnum  aðrar
rekstrartekjur eru 2 milljónir  Bandaríkjadala, sem er  árangurstengd
greiðsla vegna sölunnar á sáraumbúðavörulínur félagsins fyrr á árinu.

Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi fréttatilkynningu.