2010-11-11 15:29:34 CET

2010-11-11 15:30:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 - Fyrirtækjafréttir

Upplýsingar varðandi sjálfskuldarábyrgð


Í framhaldi af tilkynningu sem birt var 13.07. 2010 er upplýst eftirfarandi:

Eins komið hefur fram áður þá eru lán BNT hf og Umtaks fasteignafélags ehf
fallin í gjalddaga.
Unnið er áfram í samvinnu við viðskiptabanka félaganna að endurfjármögnun og
endurskipulagningu efnahags samstæðunnar. 

N1 hf sem er greiðandi að skuldabréfaflokki Esso 05 11 er dótturfélag BNT hf og
ber sjálfskuldarábyrgð á hluta af lánum BNT hf eins og bent var á tilkynningu
þ.13.7. 2010. 
Umtak fasteignafélag ehf er 49% í eigu N1 hf og er félagið aðal leigusali N1 hf.

Í upphafi var stefnt að því að vinna við endurfjármögnun og endurskipulagningu
myndi ljúka á árinu 2010, nú er ljóst að vinnan mun taka lengri tíma og ekki
klárast fyrr en á fyrri hluta næsta árs. 

Allar upplýsingar veitir Hermann Guðmundsson forstjóri N1 í síma 440 1000.