2015-08-13 14:32:13 CEST

2015-08-13 14:33:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi - Mikilvægi Rússlandsmarkaðar í rekstri HB Granda


Mikilvægi Rússlandsmarkaðar í rekstri HB Granda hefur aukist verulega á
undanförnum árum. Árið 2014  stöfuðu til að mynda um 17% tekna félagsins frá
viðskiptum við rússneska aðila. Staðgengismarkaðir fyrir helstu afurðir sem
seldar eru til Rússlands eru ekki til staðar. Það blasir því við að muni
innflutningsbann Rússlands ná til innfluttra sjávarafurða frá Íslandi mun
töluverður hluti þess afla félagsins sem unninn er í frystar afurðir á
Rússlandsmarkað verða unnin í mjöl og lýsi. Við það mun vinna við aflann minnka
og störfum við vinnsluna fækka svo um munar auk þess sem verðmæti aflans mun
lækka töluvert. 

Erfitt er að meta fjárhagsleg áhrif þessa á HB Granda en gróflega áætlað munu
tekjur félagsins lækka um u.þ.b. 10-15 milljónir evra á ársgrundvelli. Árið
2014 námu tekjur félagsins 215 milljónum evra. Félagið á nú um 6 milljónir evra
í útistandandi kröfum í Rússlandi.