2015-08-13 18:38:02 CEST

2015-08-13 18:38:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hafnarfjarðarkaupstaður - Ársreikningur

Árshlutareikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 1. janúar til 30. júní 2015


Rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánuði ársins var neikvæð um 389 milljónir króna
en áætlun gerði ráð fyrir um 80 milljóna króna halla á tímabilinu. Þetta frávik
má rekja til ófyrirsjáanlegrar endurgreiðslu á eftirágreiddu útsvari að fjárhæð
um 400 milljónir króna. Aðrar tekjur eru yfir áætlunum vegna söluhagnaðar
hlutabréfa í HS Veitum hf. Rekstur málaflokka var í takt við áætlanir.

Vegna ofangreinds fráviks og fyrirsjáanlegra áhrifa af breyttu starfsmati, sem
mun hafa í för með sér útgjaldaaukningu að andvirði um 200 milljóna króna, er
ljóst að erfitt verður að ná áætlunum ársins um jákvæða rekstrarafkomu að
fjárhæð 219 milljónir króna.

Hafnarfjarðarkaupstaður mun leggja ríka áherslu á aðhald í rekstri og eins og
fram hefur komið í tilkynningum er verið að vinna að umbótaráætlun til að bæta
reksturinn en áhrifa hennar mun ekki gæta nema að óverulegu leyti á árinu 2015.








[HUG#1945532]