2017-03-06 17:54:40 CET

2017-03-06 17:54:40 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Landsbankinn gefur út skuldabréf í evrum


Landsbankinn hf. gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra, eða að
jafnvirði um 34 milljarða króna. Skuldabréfin eru til 5 ára með gjaldaga 14.
mars 2022. Þau bera fasta 1,375% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 130
punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum.

Skuldabréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta á Bretlandi, meginlandi Evrópu,
Norðurlöndunum og Asíu. Alls bárust tilboð fyrir tæplega 700 milljónir evra sem
nemur meira en tvöfaldri umframeftirspurn, frá yfir 80 fjárfestum. Skuldabréfin
eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) skuldabréfaramma Landsbankans og
verða bréfin skráð í kauphöllina á Írlandi þann 14. mars næstkomandi.

Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða
óhagkvæmari erlenda fjármögnun ásamt því að styrkja enn frekar lausafjárstöðu
bankans.

Umsjónaraðilar útboðsins voru Bank of America, Barclays, Citigroup og JP Morgan.

Hreiðar Bjarnason, fjármálastjóri Landsbankans:

,,Útgáfan í dag er einkar ánægjuleg. Fyrir það fyrsta eru kjörin hagstæðari en
íslenskir bankar hafa séð á alþjóðlegum markaði á undanförnum árum, í öðru lagi
heldur áfram að fjölga í hópi fjárfesta sem sjá tækifæri í að fjárfesta í
skuldabréfum íslenskra fjármálafyrirtækja og í þriðja lagi er þetta lengsta
útgáfan sem Landsbankinn hefur gefið út.

Hagstæðari kjör og mikill áhugi erlendra fjárfesta endurspegla vaxandi tiltrú
þeirra á Landsbankanum og íslensku efnahagslífi. Ásættanleg kjör í alþjóðlegum
samanburði gera Landsbankanum enn betur kleift að halda áfram öflugum stuðningi
við íslenskt atvinnulíf."

Ítarlegar upplýsingar um Landsbankann eru aðgengilegar fyrir fjárfesta og aðra
áhugasama á vef bankans á slóðinni: https://bankinn.landsbankinn.is/fjarfestar/

Nánari upplýsingar:

Fjárfestatengsl: Hanna Kristín Thoroddsen; ir@landsbankinn.is; s: 410 7100


[]