2017-03-07 15:44:01 CET

2017-03-07 15:44:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Ársreikningur

Lánasjóður sveitarfélaga - Afkomutilkynning vegna ársins 2016


Hagnaður Lánasjóðsins 983 m.kr. á árinu

Rekstur og afkoma ársins 2016
Hagnaður ársins nam 983 milljónum króna samanborið við 1.046 milljónir króna
árið 2015. Afkoma ársins fyrir óreglulega liði nam 713 milljónum króna
samanborið við 818 milljónir króna árið 2015. Á árinu 2016 voru tekjufærðar 270
milljónir vegna greiðslu krafna úr þrotabúum fallinna fjármálastofnanna, Glitni
Holdco og SPRON. Árið 2015 var tekjufærsla að fjárhæð 227 milljónir vegna dóma
í gengislánamálum. 

Heildareignir sjóðsins í lok árs voru 78.024 milljónir króna á móti 77.111
milljón króna í árslok 2015. Heildarútlán sjóðsins námu 71.175 milljón króna í
lok árs samanborið við 71.575 í árslok 2015. Þá nam eigið fé 17.172 milljónum
króna á móti 16.712 milljónum króna í árslok 2015 og hefur hækkað um 2,8% á
árinu. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 85% en
var 79% í árslok 2015. 

Framtíðarhorfur
Lánasjóðurinn mun starfa í meginatriðum svipað og undanfarin ár þar sem unnið
hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin
með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að útvega sveitarfélögunum lánsfé
á hagstæðum kjörum. Væntingar stjórnenda standa til að afkoma af hefðbundinni
starfsemi verði í samræmi við það sem verið hefur undanfarin ár. 

Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 8. mars
2017 í starfsstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson
framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara
spurningum. Kynningin hefst kl. 8:30. 

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949