2008-11-12 21:51:44 CET

2008-11-12 21:53:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

- Skilanefnd Kaupþings banka fundar með kröfuhöfum



Skilanefnd Kaupþings banka hélt í dag sinn fyrsta fund með fulltrúum
stórra kröfuhafa bankans (óformlegri nefnd kröfuhafa). Fram fóru
jákvæðar umræður um stöðu mála og er gert ráð fyrir því að næsti
fundur verði haldinn innan mánaðar. Skilanefnd væntir góðs samstarfs
við kröfuhafanefndina í því verkefni að hámarka verðmæti eigna fyrir
alla hlutaðeigandi.