2012-09-26 15:34:58 CEST

2012-09-26 15:35:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Högum - Afkoma umfram væntingar og hagstæðari fjármögnun félagsins


Á stjórnarfundi Haga í dag var farið yfir drög að 6 mánaða uppgjöri félagsins
sem birt verður 25. október næstkomandi. Samkvæmt niðurstöðu uppgjörsins er
ljóst að afkoma félagsins eftir skatta fyrir tímabilið mars - ágúst 2012 mun
nema um 1,5 milljarði króna sem er betri afkoma en fyrir sama tímabil í fyrra.
Ástæður betri afkomu er lægra kostnaðarhlutfall, betri framlegð og lægri
afskriftir. 

Á fundinum var einnig samþykkt tilboð frá viðskiptabanka félagsins um
hagstæðari vaxtakjör á lánum þess. Áætlaður ávinningur félagsins á ársgrunni
vegna lægri vaxtakjara mun nema a.m.k. 70 milljónum króna.