|
|||
![]() |
|||
2017-07-11 17:31:02 CEST 2017-07-11 17:31:02 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð ríkisvíxla RIKV 18 0115Fimmtudaginn 13. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 0115 sem er með gjalddaga 15. janúar 2018. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 17. júlí 2017. Sótt verður um að RIKV 18 0115 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi mánudaginn 17. júlí 2017. Nánari upplýsingar veitir Laufey Birna Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631. |
|||
|