2017-07-11 17:55:17 CEST

2017-07-11 17:55:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru
boðnir til sölu.

Heildartilboð  í  útboðinu  voru  19 talsins  og  námu  samtals  5.020 m. kr. að
nafnverði.

Tilboð  að  fjárhæð  20 m.  kr.  að  nafnverði  barst  í  flokkinn LBANK CB 21 á
ávöxtunarkröfu 5,19% og var því tilboði ekki tekið.

Átta tilboð að fjárhæð 1.580 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24
á  ávöxtunarkröfu á bilinu  2,92%-3,00%. Tilboðum að fjárhæð  400 m. kr. tekið á
ávöxtunarkröfunni   2,92%. Heildarstærð   flokksins   verður  2.740 m.kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 3.420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á
ávöxtunarkröfu    á    bilinu    2,69%-2,75%. Öllum   tilboðum   var   tekið   á
ávöxtunarkröfunni   2,75%. Heildarstærð   flokksins  verður  10.880 m.kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Stefnt  er að töku  skuldabréfanna til viðskipta  á Nasdaq Iceland þann 18. júlí
2017. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna viðskiptavakt með sértryggða
skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]