|
|||
2015-10-22 18:19:11 CEST 2015-10-22 18:20:11 CEST Síminn hf. - FjárhagsdagatalSíminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2015Kynningarfundur verður haldinn 30. október kl. 8:30 Síminn hf. birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2015 fimmtudaginn 29. október næstkomandi. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 30. október 2015 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Á fundinum mun Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/ og í fréttakerfi Nasdaq Iceland. |
|||
|