|
|||
2010-10-21 11:57:58 CEST 2010-10-21 11:58:54 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir-Lokasamningar vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar undirritaðirÞann 12. ágúst 2010 tilkynnti Icelandair Group hf. að samkomulag hafi náðst um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Skjalagerð hefur hins vegar tekið mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, en í morgun voru allir samningar undirritaðir. Endurskipulagningin á sér stað með þrennum hætti: Í fyrsta lagi kemur nýtt hlutafé sem verður greitt inn með reiðufé eftir að skráningarlýsing hefur verið birt í kauphöll. Fjárfestar hafa skráð sig fyrir um 5,5 milljörðum króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á genginu 2,5 sem jafngildir ríflega 2,2 milljörðum nýrra hluta í Icelandair Group hf. Í öðru lagi hafa stærstu lánveitendur Icelandair Group breytt skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema um 2,9 milljörðum nýrra hluta að nafnvirði. Í þriðja lagi lækka vaxtaberandi skuldir um ríflega 10 milljarða króna með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins. Í kaupsamningum vegna eignasölunnar, sem undirritaðir voru í morgun, eru hefðbundnir fyrirvarar um og frágang formsatriða í tengslum við söluna, svo sem samþykki opinberra aðila, eftir því sem við á. Söluhagnaður vegna sölu eignanna nemur um 3,2 milljörðum króna en að teknu tilliti til skatta og þýðingarmunar eru áhrif á eigið fé jákvæð um 0,5 milljarða króna. Samtals lækka vaxtaberandi skuldir um tæpa 14 milljarða króna og verða þær um 26 milljarðar króna eftir endurskipulagninguna. Icelandair Group hf. fyrirhugar að safna u.þ.b 2,5 milljörðum króna til viðbótar með útgáfu nýs hlutafjár. Tilkynnt verður síðar um fyrirkomulag og tímasetningu þess útboðs. Icelandair Group hafði áformað að birta uppgjör 3. ársfjórðungs í viku 44. Vegna vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu hefur uppgjörsvinna tafist og félagið hefur ákveðið að fresta birtingu uppgjörs til 15. nóvember. Starfsemi samstæðunnar hefur að mestu gengið vel að undanförnu og betur en áætlanir. Félagið hefur því hækkað EBITDA spá ársins 2010 úr 8,5 milljörðum króna í 9,5 milljarða króna. Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími 665-8801 |
|||
|