2009-10-16 16:45:46 CEST

2009-10-16 16:46:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

Innköllun vegna nauðasamninga Sparisjóðs Mýrasýslu


Með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands uppkveðnum 30. september sl. var Sparisjóði
Mýrasýslu veitt heimild til að leita nauðasamninga. Umsjónarmaður með
nauðasamningsumleitunum var skipaður Garðar Garðarsson hrl. 

Meðfylgjandi er innköllun til lánardrottna er fara með samningskröfur, er
birtist í Lögbirtingarblaðinu í fyrra sinn þann 9. október 2009. Mun
kröfulýsingarfresti því ljúka 6. nóvember 2009. Þá reyndist nauðsynlegt að
breyta ákvæðum frumvarps til nauðasamninga, vegna breytinga á samsetningu
hlutafjár í Nýja Kaupþingi banka hf. 

Meðfylgjandi er frumvarp til nauðasamninga fyrir Sparisjóð Mýrasýslu
eftir framangreinda breytingu.