2016-08-22 18:47:08 CEST

2016-08-22 18:47:08 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Fjarskipti hf. - Ársreikningur

Fjarskipti hf. : Hagræðingaraðgerðir teknar að skila árangri


Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir annan ársfjórðung 2016 var samþykktur af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 22. ágúst 2016.

  * Tekjuaukning 2% m.v. annan ársfjórðung 2015
  * Framlegð 1.605 m.kr. og stendur nánast í stað miðað við sama tímabil 2015
  * EBITDA hagnaður nam 751 m. kr., lækkun um 3% milli ára
  * EBITDA á Íslandi er hærri en á sama fjórðungi í fyrra en lægri í Færeyjum
  * EBITDA hlutfall 21,7% og EBIT hlutfall 11,7% á fjórðungnum
  * Hagnaður tímabilsins nam 248 m.kr., sem er 17% lækkun frá öðrum ársfjórðungi
    2015
  * Eiginfjárhlutfall nam 45,3%


Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Rekstur  Fjarskipta var í takt við  væntingar á öðrum ársfjórðungi. Fyrri hluta
ársins  einkenndist hann af aukningu launakostnaðar í tengslum við kjarasamninga
á  sama  tíma  og  verðsamkeppni  á  farsímamarkaði  hafði áhrif á tekjur bæði á
Íslandi  og í  Færeyjum. Ef  uppgjör annars  fjórðungs er  borið saman  við þann
fyrsta má glöggt sjá að hagræðingaraðgerðir sem hófust á fyrsta ársfjórðungi eru
farnar  að skila árangri, eru á áætlun og munu halda áfram að skila sér á seinni
hluta  ársins,  sérstaklega  þegar  tekið  er tillit til einskiptiskostnaðar við
forstjóra  í Færeyjum á  nýliðnum fjórðungi. Markmið  áætlana er að seinni hluta
árs  hafi  félagið  varið  reksturinn  fyrir  þeim  kjarasamningshækkunum umfram
verðbólgu sem komu fram af þunga í uppgjöri fyrsta fjórðungs.

Sé  einungis horft til  Íslands er EBITDA  á öðrum ársfjórðungi  hærri en á sama
tíma  fyrir ári en áfram lægri í Færeyjum. Unnið er að styrkingu starfseminnar í
Færeyjum en á ársfjórðungnum var Rúnar Reistrup, Færeyingur með mikla alþjóðlega
fjarskipta  og  viðskiptaþróunarreynslu,  ráðinn  nýr  framkvæmdastjóri Vodafone
Færeyja.  Við bindum miklar vonir við að hann  muni snúa vörn í sókn í starfsemi
Vodafone í Færeyjum í samvinnu við okkur árið 2017.

Ýmsir  jákvæðir hlutir  eru í  uppbyggingu hjá  félaginu sem  fyrr, ekki  síst í
samstarfi  við Vodafone Group. Sem dæmi var  nýverið greint frá því að við getum
nú  boðið  íslenskum  fyrirtækjum  alþjóðlega  fjarskiptaþjónustu í samvinnu við
Vodafone  Group. Vodafone á Íslandi varð  þar fyrsta sjálfstæða fyrirtækið undir
merkjum  fjarskiptarisans til að  bjóða þessa lausn  á alþjóðavísu. Vodafone ONE
hefur    einnig   hlotið   mjög   góðan   hljómgrunn   meðal   viðskiptavina   á
einstaklingsmarkaði,  þar sem félagið  bætti við sig  viðskiptavinum þrátt fyrir
harða  samkeppni á fyrri hluta ársins. Við erum  stolt af því að vera stöðugt að
bæta  þjónustu til viðskiptavina,  bæði með tilliti  til verðs og gæða tenginga,
jafnt  hérlendis og  erlendis. Þessi  bætta þjónusta  og gæði fyrirtækisins hafa
leitt  til aukinnar notkunar á gagnamagni bæði í farsíma og interneti. Til dæmis
bentum  við nýverið  á þá  skemmtilegu staðreynd  að um  600% meðalaukning var á
notkun  gagnamagns meðal  viðskiptavina okkar  sem heimsóttu  Frakkland í júní á
milli ára."


[HUG#2036583]