|
|||
![]() |
|||
2016-10-25 18:13:52 CEST 2016-10-25 18:13:52 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Standard & Poor's hækkar lánshæfiseinkunn Landsbankans í BBB/A-2 með jákvæðum horfumAlþjóðlega matsfyrirtækið Standard and Poor's (S&P) hefur hækkað lang- og skammtíma lánshæfiseinkunn Landsbankans úr BBB-/A-3 í BBB/A-2 og telur horfurnar jákvæðar. Þetta kemur fram í mati fyrirtækisins á lánshæfi Landsbankans sem birt var í dag, 25. október 2016. Í fréttatilkynningu frá S&P kemur fram að lánshæfiseinkunn Landsbankans hafi m.a. verið hækkuð vegna sterkari fjárhagsstöðu bankans auk þess sem aðstæður í efnahagslífinu séu hagfelldari en áður. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að áhætta vegna útlána minnki samhliða lækkandi skuldsetningu íslenskra heimila en S&P gerir ráð fyrir að á næstu tveimur árum verði skuldahlutfall heimila á Íslandi svipað og í öðrum auðugum Evrópulöndum. Aflétting gjaldeyrishafta gangi vel sem muni styrkja efnahagslífið og þar með efnahagsumhverfi íslenskra banka. S&P bendir á að bankar á Íslandi hafi nú betri aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum og að talsverðar umbætur hafi verið gerðar á regluverki og eftirliti með íslenskum fjármálamarkaði. Gripið hafi verið til aðgerða til að koma í veg fyrir að aftur verði ofþensla, líkt og á fyrsta áratug aldarinnar. Þá hafi verið settar skorður við áhrifum fjármagnsflæðis til og frá landinu á innlendan efnahag. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir: ,,Það er ánægjulegt að Standard & Poor's hafi hækkað lánshæfismat bankans. Matið staðfestir hagfellda þróun hér á landi, sterka stöðu Landsbankans og að skýr stefna bankans skili árangri. Undanfarin misseri höfum við í Landsbankanum fundið fyrir vaxandi trausti og trú á bankanum. Það kom m.a. í ljós í haust þegar mikil eftirspurn var eftir 500 milljón evra skuldabréfaútgáfu bankans til erlendra fjárfesta, sem var til lengri tíma og á betri kjörum en áður höfðu verið í boði fyrir íslenska banka. Hækkun á lánshæfismati úr BBB- í BBB með jákvæðum horfum gerir bankanum enn betur kleift að veita sístækkandi viðskiptavinahópi fyrirmyndar bankaþjónustu." Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|